30 January, 2007

Rasismi Borgar Sig Ekki

Þegar ég sá Margréti Sverrisdóttur í sjónvarpinu í gær, að lýsa yfir að hún ætlaði úr Frjálslyndaflokknum, var ég alls ekki hissa. Þegar Magnús Þór Hafsteinsson og Jón Magnússon ákváðu að reyna að bæta við fylgi flokksins með því að halda fram rangfærslu, óraunhæfum ótta og hræðsluáróðri um innflytjendur í haust, fékk flokkurinn smá aukafylgi, af sjálfsögðu - upp í 11% í nóvember. En samkvæmt Fréttablaðið skoðunukönnun hefur það fylgi minnkað niður í 10% á milli nóvember og janúar. Merkilegri er hvernig hinir fjórir flokkanir - og þjóðin öll - hefur brugðist við því, að standa upp á móti þessum hreina hræðsluáróðri og segja: “Nei, þetta eru ekki við, og þetta viljum við ekki.”

Meira að segja hafa margir innan Frjálslyndra sagt að þeir séu á móti þessarri nýju stefnu, í blöðum, í útvarpi og í sjónvarpi, þar á meðal Margrét. Svo mikil er andstæðan innan flokksins að eina leiðin til að koma í veg fyrir að hún næði ekki varaformennsku flokksins var að nota brögð - og þá tapaði hún með aðeins 111 atkvæðum, eða tæpum 7% atkvæða. Það er ekkert skrýtið að hún ákvað að hætta, og hún mun líklega taka marga kjósendur með sér. Þannig myndi “nýji” Frjálslyndiflokkurinn fara aftur niður, líklegri lægra en hann var áður en ákvörðunin var tekin um að nota rasisma til að bæta sig.

Þannig er það: rasismi borgar sig ekki.

En þetta er bara tímanna tákn - nýlega hefur ríkistjórnin gefið út “Stefnu um aðlögun innflytjenda”, sem bendir á - eins og kom fram í Gallup könnun síðasta sumar - að flestir Íslendingar vilja fjölmenningalegt land.

Ég er búinn að lesa stefnuna, og á meðan það sé gott að sjá að ríkistjórnin sé að reyna að benda á rétta leið, er hún óljós, og skilur eftir margir spurningar. Við í Vinstri-Grænum erum nú þegar að búa til hraustlega, frumlega, og skapandi innflytjendastefnu sem verður góð fyrir landið allt, og verður endanlega mótuð á landsfundi okkar í febrúar. Tíminn er löngu kominn fyrir meira en vísbendingar og tillögur. Ég og margir fleiri innan flokksins erum að skapa innflytjendastefnu sem segir nákvæmlega hvað þetta land á að gera til að samþætta fólk sem hingað kemur, til að tryggja velferð og framtíð landsins, og gera Ísland að fyrirmyndalandi í innflytjendamálum fyrir Skandinavíu, Evrópu, og allan heiminn.

Þetta er spennandi tími til að vera í þessu frábæra landi. Aldrei hef ég verið stoltari að vera hluti af þessu landi og þjóð. Langflestir Íslendingar vilja að þetta land byggi á réttlæti og lýðræði, og þá einnig í innflytjendamálum. Mér er ánægja að taka þátt, og við í Vinstri-Grænum myndum tryggja það að innflytjendastefna landsins verði byggð á vilja þjóðarinnar með pratískum leiðum sem yrðu bestar fyrir allt landið. 

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég endurtek aftur: það er ekki hægt að byggja upp fjölmenningalegt samfélag á Íslandi án þess að spyrja innflytjenda hvað þeir vilja sjálfir og hvernig þeir sjá framtíðina á Fróni fyrir sig. Vonandi gerir VG-flokkurinn eitthvað í málunum.

7:02 PM  
Blogger Paul F Nikolov said...

Takk fyrir það. VG er alveg opinn fyrir þá sem vilja að taka þátt í því að skapa innflytjendastefnun okkar. Hefðu bara samband við mig.

10:44 PM  

Post a Comment

<< Home